sunnudagur, apríl 01, 2007

Núna

legg ég kvenfólkið og brennivínið til hliðar. Býst við að þá og þegar geti Spaugstofan farið að gera úttekt á rannsóknum mínum, og sný mér að öðru: Viðhorfum útlendinga til drykkjuskapar íslendinga. Nóg er af lýsingum á því í ferðabókunum. En var hins vegar að frétta af undraplöntu sem heitir Alpalyng og vex á heiðum uppi í Mið-Evrópu. Sú planta hefur sömu áhrif og Viagra. Ef að blómin á plöntunni eru látin liggja í brennivíni í nokkurn tíma fyrst. Einu sinni var öl bruggað úr Beitilyngi. En hver veit....ef til vill eiga þessi fallega bleiku blóm einhvern töframátt. Ehm..því skyldi bleikt annars vera hinn hefðbundni litur á klæðnaði kvenna? Sérstakur kvennalitur. Þetta gæti verið fróðlegt. En Beitilyngið blómstrar ekki fyrr en í ágúst...Nei, þetta er ekki sama planta og Vetrarblómin sem vaxa hér uppi á Hellisheiði. Sorry. En það þarf að muna að taka bara blómin af lynginu, því sveppurinn sem vex á stilkunum gefur ennþá meiri svona hemm hemm áhrif.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home