Kaupþing

spyr menn núna hvort þeir séu tengdir hryðjuverkasamtökum og ég er ekki alveg viss. Miðað við þessa mynd úr stofunni minni í dag, þar sem Frelsisher Flóa og Skeiða er saman kominn. Frá vinstri: Sindri, Bjarni, Birgir, Árni Jón, Gunnar, og þessi með hnakkann í forgrunninum er á þessu heimili ýmist kallaður Andri, sagnfræðineminn eða hálfpatróninn eftir því hvernig liggur á mér. Frelsisherinn er vissulega ekki ógnvekjandi félagsskapur, Andri er til dæmis efnavopnasérfræðingur félagsskaparins vegna þess að hann er sá eini í hópnum sem getur borðað ostapizzu. Og er einstaklega laginn að eignast ketti óvart. Gunnar er gjarna bílstjóri hópsins, og hann heldur að hann sé uppi á Flúðum um leið og hann er kominn upp á Skeiðaafleggjarann. Og það verður að segjast að þeir geta stundum gert alvarleg taktísk mistök, eins og að boða fund fyrst og spyrja mömmu sína svo hvort þeir þurfi að gera eitthvað fyrir hana áður en þeir fari að hitta strákana. Það vita allir hvernig mömmur bregðast við svona spurningu. Menn eiga ekki aðsegjast vera að gera neitt, spyrja mömmu og hringja svo í strákana. Þetta vita allir sem einhverntíma hafa dílað að ráði við mömmur. Svo, þegar allt er talið, er þessi félagsskapur ekki líklegur til stórræðanna en nokkuð öruggur með að klúðra einföldustu áætlunum.


Links to this post:
Create a Link
<< Home