Heimahelgi
og skólalok. Ég byrgi mig upp af myndböndum, reyfurum og tölvuleik til að drepa helgina. Andri verður sunnan fjalla, ég og kötturinn hér. En svo er allt í einu komið vor: Það er brum á trjánum, grillkjöt í búðunum. Og þá kemur þessi tími sem alltaf skellur yfir mig á vorin: Hreingerningar. Eftir daginn lítur þetta frekar aulalega út: hreinir og afþurrkaðir þrifnir blettir hér og hvar í íbúðinni þar sem draslið pirraði mig mest, svo nú lítur heimilið mitt út eins og illa rúin rolla: Lufsur undir kviðnum og á lærunum. En aðgerðir dagsins bera þó vitni bjartsýni húsráðanda, að einhverntíma muni hann sjá út úr óreiðunni og gera bæinn sinn manngengan og gestum bjóðandi. En nú er skólinn að verða búinn og þá tekur húsþrifatíminn við.


Links to this post:
Create a Link
<< Home