mánudagur, apríl 02, 2007

Ég hef

unnið upp eitthvað af verkefnum sem voru komin á vinnslustig, ef svo mætti segja. Bókastaflinn í rúminu mínu var líka orðinn svo umfangsmikill að kötturinn var hættur að fóta sig. Ekki það að ég hafi ekki tekið aðrar bækur heim af bókasafninu. Sigur lýðræðisins í Hafnarfirði stendur uppi með að vera innantómur og enginn: Eftir sem áður er líka stefnt að því að virkja í þessari Neðri -Þjórsá sem ég hef ekki hugmynd um hvar rennur og álverið muni eftir sem áður geta stækkað. Sem aftur segir að auðræðið er komið til okkar, sama hvað hver segir og þó að einhverjir lýðræðissinnar séu að æmta og skræmta, japla jamla og fuðra. Eina sem hinn almenni kjósandi getur sagt er "Ég bý bara hérna." Og svo er einhver klónari búinn að búa til rollu sem er 15% manneskja, eða þannig, og það eiga að vera tíðindi. Það er ekkert nýtt við þetta fyrir okkur sem búum í kjördæmi Árna Johnsen og innan um kjósendur hans.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home