föstudagur, apríl 06, 2007

Það er

víst liðin tíð að þjóðin komi sér saman um að láta sér leiðast á föstudaginn langa. En hugmyndin er alls ekki vitlaus. Höfum bara einn dag á ári sem er leiðinlegi dagurinn. Látum svo gott heita alla hina. Feðgabyggð tekur lífinu með hægð og spekt. Andri kom austur á miðvikudaginn og kötturinn fagnaði honum með háværu löngu gleðimjálmi og loftköstum. Kettir kunna ekki að leyna tilfinningum sínum - og það er heldur ekki nokkur ástæða til þess. Þessa páskana höfum við ekki kvikmyndahátíð: Dólum okkur bara yfir bóklestri og öðru smáföndri, netrápi og spjalli.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home