mánudagur, febrúar 12, 2007

Þvílík gleði


og sæla. Ég setti upp Microsoft Office 2007 hjá mér um daginn og ég var fyrst að fatta eitt núna. Clippy, bréfaklemmukarlinn sem aldrei gerði neitt gagn en var að bögga mann í tíma og aðallega ótíma eins og leiðinlegur ættingi, eins og andskotinn upp úr súru, eins og fyrrverandi maki á óþægilegu augnabliki...er horfinn. Hann er dáinn. Blessuð sé minning þess bannsetta óþarfa. Þessarar fordæmingar sem alltaf lá í leyni tilbúinn að vera til trafala.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home