Sylvía Nótt
sökkar ferlega. Þvílíkt endemis fádæma hvítt rusl sem ein manneskja getur verið. (Þetta segi ég bara vegna þess að núna bankar hún upp á hjá bloggurum sem skrifa ljótt um hana með tvo sterka náunga með sér og hótar illu ef bloggið verður ekki lagað.) Ég sá í kommenti einhvers staðar að Kastljós sjónvarpsins hefði átt að láta hana taka viðtalið við afhommarann sem var í þeim góða fréttaþætti í kvöld. Það hefði verið..bíó fyrir þjóðina eftir allar tilfinningasveiflurnar sem verið er að velta sér upp úr. Og arg..í morgun var ég með svo mikinn hálsríg að ég gat ekki einu sinni snúið höfðinu til að horfa á fallegan kvenmann. (Karlmenn skilja þennan mæta vel.) En það lagaðist þegar leið á daginn. Það var samt eiginleg verst að keyra, ég var háskalegur í umferðinni að geta ekki litið til hægri eða vinstri og keyra aðallega á greindarlegum getgátum um umferð frá báðum hliðum. Verð væntanlega skárri á morgun.


Links to this post:
Create a Link
<< Home