Smám saman
dregur karlinn sig upp úr letinni. Lagt upp í helgina með nóg að lesa: Rokland. Þá er nóg fyrir eina helgi: Bara hugmyndavinnan sem fer í að lesa Hallgrím Helgason er eins og að mjólka kú með bilaðri mjaltavél. Venjulega gengur sogskiptirinn hægt og rólega, framspenar-afturspenar, framspenar-afturspenar - en hjá Hallgrími afstillist sogskiptirinn, togar í alla spena í senn, mjólkin frussast upp úr spenahylkjunum eða mjaltirnar æða áfram á vitlausum hraða. Samt þurrmjólkast ekki. Hann er eins og bóndi í réttum að reyna að skyrpa í allar áttir í einu. Bókmenntalegur Rambó með vélbyssur í báðum höndum. Missir samt furðu sjaldan marks. Skyrpan lendir alltaf á réttum stað. Prýðileg lesning með útsynningi og éljajangi. Andri kemur að sunnan og nú ber nýrra við - han kemur ekki með fulla tösku af þvotti. Það hefur reyndar aldrei virkað hjá honum: Sá gamli segir bara að þvottahúsið sé niðri í kjallara. Og mamma hans hefur ekki þvegið af honum heldur. Hann hefur notað þvottahúsið á görðunum. Þegar ungur maður fer af sjálfsdáðum og óbeðinn í þvottahúsið, þvær af sér og gengur frá þvottinum er það til marks um að vera orðinn fullorðinn.


Links to this post:
Create a Link
<< Home