Og aftur er komin helgi
með tilheyrandi. Sagnfræðineminn er nýbúinn að fara í aðgerð út af tvíburabróður við rófubeinið og situr þessa helgi halaklipptur suður í Reykjavík að lesa "Harmsaga æfi minnar" eftir Jóhannes Birkiland. Dálítið kyndug samsetning, en hann á að gera þetta samkvæmt skipun kennara síns, ekki læknisins. Mér láðist að benda honum á að Píslarsaga séra Jóns Magnússonar væri hér á heimilinu. Í vinnunni skilaði vikan tveimur litlum kraftaverkum og þeir hlutir sem ég hafði áhyggjur af um síðsutu helgi eru núna úr veginum. En það koma ný mál að takast á við. Kötturinn liggur inni á rúminu mínu og skemmtir sér við að banka rófunni ofan á bók sem liggur þar og hlusta á hljóðið. Feðgabyggð mælir um helgina með læknisráði frá ítölskum læknum á síðasta áratug 19. aldar: Konum sem voru andsetnar var ráðlagt að dreka vín reglulega til að reka illa anda út, og jafnframt að sjá um að drekka vín til varnar þeim. Fyrirbyggjandi lýðheilsufræði. Gangi ykkur vel að halda Sóta gamla fjarri dyrum.


Links to this post:
Create a Link
<< Home