Leti
er yfirskrift flestra daga núna. Reyfaralestur og daglegt amstur og fréttanagg er einhvern veginn svo skelfilega lítið þegar maður horfir yfir söguna alla. Ég les og hugsa um kvenfólk og brennivín, án þess að rekast á það í tilverunni, sem er ágætt, og Lafði Hermína Elmindreda Kampagrána kattarskömm drekkur ekki. Allavega ekki áfenga drykki, henni dugar vatnsskál uppi á baðvaskinum. En hún lætur mig líka kyrfilega vita þegar þarf að bæta á það ílát. Svo ég er ekki laus undan því að taka eftir hvort það þarf eitthvað að drekka hjá dömunni. Aldrei láta glas dömunnar - eða undirskál, í þessu tilfelli, vera tómt. Grundvallarregla. Annars er bara verið að slaka á - ég þyrfti auðvitað að taka til, en hvað liggur á.


Links to this post:
Create a Link
<< Home