fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Klámið blásið af

Og þannig fór um þá heimskautareisu klámforkólfa. Íslenskir frumkvöðlar á því sviði verða greinilega að berjast harðar fyrir sínum hlut. Og það voru bændurnir sem blésu það af. Þeir hafa nú löngum átt sín þing þar sem farið var með klám, aðallega í bundnu máli. Þau voru bara kölluð hestamannamót, réttir eða hrútasýningar. Kannski var það það sem var að- að erlent klám er ekki með réttum stuðlum og höfuðstöfum. En það dugar ekki að láta einhverja Hollendinga hertaka hinn eina rétta íslenska klámiðnað. Nú dugar ekki minna en haldin verði fjörleg hrútasýning á Hótel Sögu, og vísnakvöld í öllum landsfjórðungum til að viðhalda þjóðlegum venjum.

|

Links to this post:

Create a Link

<< Home