Þá er
komin helgi. Þær koma svo ótt og títt að ég er farinn að halda að það hafi verið bætt helgum í árið. Ekki svo að skilja að ég sé að kvarta. Háskólaneminn halaklippti kom í kvöld og ég verð að undirbúa fyrirlestur um kvenfólk og brennivín. Kem út úr skápnum með það í næstu viku. Þar verða hagnýtar leiðbeiningar um hvað eigi að gera við pizzusendla í stelpupartíum...ef það verður eitthvert vesen með þá,(binda þá við súlu og dansa í kringum þá) hvernig konur eigi að bægja frá sér illum öndum, hvað þær eigi ða gera í þynnku (bleyta handklæði í víni og vefja því utan um brjóstin) hvaða fyrirbæri eru uglur guðleysisins, (konur, auðvitað) og ýmislegt fleira.


Links to this post:
Create a Link
<< Home