sunnudagur, febrúar 18, 2007

Ef

blaðamenn og fjölmiðlar hefðu orðið varir við það sem ég sá í vinnunni í fyrradag....þá hefði þeim fundist það athyglisvert. Nei, það var ekki ofbeldi (nema smá ákveðni af minni hálfu án ofbeldis eða átaka) en það var samt gaman að sjá það. En ég hef ekki leyfi til að segja frá þessu. Í staðinn tek ég helgina inn, laga svolítið til á heimilinu svo að nú er partur af mínu horni af heiminum aðeins hreinni og fer svo að dunda við skriftirnar. Stend ekki lengur fastur. Skrifa DVD diska fyrir leikfélagið - eða réttara sagt, tölvan mín gerir það. Á meðan velti ég fyrir mér lífinu og tilverunni. Og meðan ég man...fjölmiðlarnir. Þessir íslensku fjölmiðlar eru orðnir hrein sápuópera. Alltaf að koma ný blöð og tímarit sem hverfa jafn skótt og þau koma. Ekki hægt að gefa út blöð nema gamlir sjóarar stjórni þeim. Sigurjón Egilsson og Reynir Trausta. Það segir eitthvað um áhafnirnar. Menn sem hafa hálfdrepið sum blöð (DV) eru undireins settir í virðingarstöður annars staðar. Mig langar að sjá Mikael Torfason taka við Bændablaðinu. Hann gæti kannski hresst upp á Búnaðarritið. Og það er ekki eins og að blöðin setji markið á lesendahópa í raun og veru...nema kannski Bistro, sem var að leggja upp laupana srax. Fullt af blöðum sem öll eru að tala um sama hlutinn. Málið er að íslenskur fjölmiðlamarkaður er ekki til: En auglýsingabransinn er það hins vegar. Það eina sem lofar góðu er að farið er að gera pappír úr fílaskít. Það væri kannski hægt að nota skán í þetta hér á landi, svo maður þurfi ekki að fara með góðan part af trjábol sem maður hefur ekkert beðið um vikulega í endurvinnslu. Hlýnun jarðar, hér kem ég með mitt framlag. Og í hvert skipti sem blað leggur upp laupana stofnar ritstjórinn annað, og ræður þangað alla gömlu vini sína...þangað til það fer yfrum, þá er bara að stofna annað og ráða aftur vini sína...þetta er soldið eins og sjávarútvegurinn var fyrir svosem tuttugu árum, allir að gera út og allir á hausnum, en héldu samt áfram að gera út þó varla kæmi nema stöku horaður þorsktittur inn á dekk...

|

Links to this post:

Create a Link

<< Home