Breiðavík
Byrgið og Heyrnleysingjaskólinn - hvað verður næst? Koma héraðsskólarnir gömlu líka við sögu? Af hverju voru rimlar fyrir gluggum á sumum þeirra síðustu árin? Ég veit lítið um Breiðuvík og fólkið þar nema að ég þekkti á sínum tíma einhverja menn sem höfðu verið þar, en þeir töluðu lítið um það. Ég hef aldrei komið þar, rétt horft niður í víkina á leið út á Látrabjarg. Ég hef oftar siglt þar fram hjá og séð staðinn, og notað ljósin þar til að sigla á í náttmyrkri á leiðinni inn á Patró. Ég vissi að staðurinn var ekki góður. Það vissu allir. Og það hefur ekki verið auðvelt að strjúka þaðan, hafi einhver reynt það. Fyrst hefur þurft að komast upp brekkuna upp á fjallið....vandinn er ekki bara staðurinn og það sem þar var að gerast. Heldur hitt að sá sem lendir á svona stað hefur enga leið til að leita réttar síns. Og svo líka að það er vinsælasta lausn sem til er í opnbera kerfinu að þegar vandamál kemur upp er langsamlega sniðugst að dömpa því á einhvern annan og fara svo í kaffi. Ýta frá sér, ekki horfa á málið og það síðasta sem alls ekki má er að taka á málinu. Og vei þeim sem segir frá. Það þýðir að það gæti þurft að gera eitthvað. Sá sem það gerir verður óvinsæll og eignast óvini. Verandi maður sem eitt sinn var rekinn úr skóla fyrir kjaftríf. Látið mig þekkja það, opinberan starfsmanninn. Þess vegna taka allir sem fá svona mál inn á sitt borð þá afstöðu að gera ekkert, vagga því í svefn eða koma því á borðið hjá einhverjum öðrum. Sem bregst eins við. Sem sveitamaður kannast ég ærið vel við þá frábæru lausn allra vandamála að koma vandamálafólki út í sveit. Bara eitthvað frá augunum á fólki, þar sem athugul augu sjá ekkert, heyra ekkert og ekkert er sagt. Breiðavík er einmitt vel staðsett til þess, sést ekki nema utan af hafi. Og þetta er enn að gerast, er jafnvel orðið atvinnuskapandi í sveitinni minni - Það þarf vökult auga líka til að fylgjast með því sem verður að gerast í skólanum í Gaulverjabæ. Æ. Já annars - ég ætla að tengja hérna á einn erfiðan, sem ekki horfir með blinda auganu á hlutina heldur talar um þá. Svo er hann líka frændi minn, sonur Sigríðar föðursystur minnar. Kristinn Pétursson, fiskverkandi (og talsverður hávaðabelgur, ef ekki hreinlega bannsettur rífikjaftur sem alltaf er að tala um hluti sem á að þegja í hel). Allur í móðurættina sína, bæði að skaplyndi og útliti. Það gengur sko aldrei neitt með einhverju gaufi. Hehe..Diddi hvað heldurðu að ég hafi oft heyrt þennan frasa líka í uppvextinum. Eins og talað beint út er henni ömmu....


Links to this post:
Create a Link
<< Home