At the Clammafingi
Ah já.. Það var þetta klámþing sem á að halda í Reykjavík bráðum. Eins og það sé eitthvað nýtt: Þau hafa oft verið haldin hér áður en ganga bara undir öðrum nöfnum, svosem hestamannamót eða réttir eða hvaða samkomur sem vera skal þar sem karlar syngja saman. Svona klámtónlistarþing. Það gáfulegasta sem ég hef heyrt sagt um þetta mál er á blogginu hans Gumma Kalla þar sem hann spyr hvort þetta klámþing sé eitthvert dótturfyrirtæki Kaupþings. Ég býð eftir auglýsingum með John Cleese.."Oh it´s great to be here at the Clammafingi." En hver ætti svo sem að furða sig á því ef mið er tekið af nýlegum myndböndum sem hafa gengið milli manna á netinu hér á landi. Hvað gerir fólk ekki fyrir pening, miðað við hvað það gerir fyrir ekki neitt til að skemmta landanum? Hér er óvirkjað hugvit sem þarf að koma í útrás. Annars er mér sama. Klám er leiðinlegt, subbulegt og frekar ljótt, ég hef ekki minnsta áhuga á því og get þessvegna skellt skollaeyrunum við því án þess að þurfa að fá fjölda manns í lið með mér til að leiðast það: Ég þarf ekki stuðningshóp til þess eins og mér sýnist sumt fólk vanta til að geta verið hneykslað. Það liggur við að mér sé farið að finnast kennaraþing meira spennandi, og forðast ég þau þó alla jafna en mótífið er svipað: Allir að kjafta sig saman um nýju aðferðirnar sem virka svo miklu betur en þær gömlu.


Links to this post:
Create a Link
<< Home