Smátt og smátt
fer kúfurinn af jólunum. Leifarnar af góðgætinu étast upp smám saman og eðlilegir lífshættir koma til baka. Skólinn byrjar á mánudag. Ég verð með minni kennslu en vanalega, en það kemur ekki svo mikið að sök - eins konar hvíld í því að kenna bara skylduna. Feðgabyggð fór í klippingu í dag, og við komum alveg herköttaðir heim. Andri er að velta fyrir sér starfsmöguleikum nörda. Tja...nörd með starfsframaáætlanir er nú eitthvað sem ekki er alveg að passa saman. Veit ekki hvað kemur út úr þessum plönum. Það er aldrei auglýst í blöðunum "nörd óskast til að"....ja, til hvers? Það vantar alveg sérstaka tegund af háskóla hér á landi. The Dork Academy of Selfoss? Það gengi kannski ef það yrði byggt hnakkamusteri í Miðjunni sem allir eru að rífast um. Hvernig liti þannig bygging út? Hvað yrði gert þar? Ég veit að þetta hljómar eins og einhver bilaður svefngalsi en ég er ekki baun syfjaður.


Links to this post:
Create a Link
<< Home