Og
þessa helgina er karlinn einn í kotinu með ketti sínum. Letin tekur menn föstum tökum, ekkert gert nema að taka aðeins til og flytja í nýja skjalatösku fyrir vinnuna. Ég var líka að finna nýjar teiknimyndasögur að lesa, Fables. Gamlar söguhetjur úr gömlum ævintýrum í nýjum hlutverkum og nýjum heimi, þar sem Mjallhvít giftist stóra grimma úlfinum og þau eignast sjö hvolpa. Í einum rykk. Nornin úr Hans og Grétu er virðuleg eldri frú og heitir Frau Totenkinder. Gosi er hundfúll yfir að hafa verið táningur í þrjú hundruð ár og stækkar aldrei..erfitt upp á kvenfókið að gera hjá honum, garminum. Skemmtilegar lesningar, en vantar í þær bilunina úr Sandman. Gaman vita hvað Neil Gaiman gæti gert við þessar sögur. Andri segist ætla að taka helgina í að heimsækja mömmu sína. Að það taki mann rétt rúmlega tvítugan heila helgi að fara af Eggertsgötunni upp í Grafarvog er eitthvað sem ég er ekki að kaupa, en ég blanda mér ekki í það hvað hann er að brasa. HM í handbolta er að ganga vel, en minn maður í þeirri keppni er þessi 18 ára grænlendingur, sem er markahæsti maður HM og spilar með einhverju öðru deildar KFUM liði í Silkiborg. Lýsir vel viðhorfi og viðmóti dana gagnvart hjálendunum, það breytist ekki.


Links to this post:
Create a Link
<< Home