laugardagur, janúar 06, 2007

Og svo

kom þrettándinn. Ég fór auðvitað á brennuna og flugeldasýninguna. Það var gaman - aldrei verið annar eins mannfjöldi við þrettándabrennu. Allir kappklæddir í kuldagöllum nema ég - ég var held ég eini fulltrúi apategundarinnar hnakkus selfossicus þarna, á peysunni, vestinu og berhöfðaður. Nei, mér var ekki kalt. Allir horfðu í þögulli andakt á flugeldana þjóta upp og á eftir var klappað kurteislega fyrir fagmannlegri vinnu. Það gera þeir á Selfossi. Og enn einu sinni kemur þessi þurri antíklímax eftirjólanna með myrkri á nóttunni. Og þorramat í búðunum. Svo kemur rauðmaginn, hrognin og lifrin. Ekki það að það sé slæmt.....
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home