Nei
ég tjái mig ekki um Byrgið. Það kemur fólk þar ofan að í skólann minn stundum. Ég velti ekki fyrir mér nýju skjölunum frá Utanríkisráðuneytinu, það er hvort sem er ekkert mjög merkilegt í þeim. Ég fylgist ekki með pervertaveiðunum sem nú ganga eins og alda yfir þjóðfélagið. Enda snertir það mig ekki, svosem. Til þess þyrfti ég að eiga hvítan sendiferðabíl og bílskúr með gryfju. Kæri mig grákollóttan um frumvarpið um RÚV. Ef lesbíur hafa eignast barn er það ekki í fyrsta skipti í mannkynssögunni sem ein af þeim hefur orðið ólétt. Ég er bara heima á náttsloppnum að lesa nýja bók eftir Carl Hiaasen sem er svo drepfyndin að ég varð að lesa hana aftur strax eftir að hafa lesið hana um jólin. Reyfari með engum glæpamanni. Og að njóta vetrarins.


Links to this post:
Create a Link
<< Home