fimmtudagur, janúar 11, 2007

Nei

ég var ekki veikur, mér var bara kalt. Og það er til óbrigðult ráð við því, það er rúm, heit sæng, teppi og köttur. Skjálfa sér til hita. Mér finnst svo gott að fara fram úr heitu rúmi og upp í það aftur að ég geri það gjarna nokkrum sinnum. Ég er að verða alveg eins og kötturinn: Þegar rignir fer hún út, kemur inn blaut og vill láta þurrka sér með handklæði, stekkur svo aftur út og kemur inn blaut..það er svo gott að láta þurrka sér. Og það er þrátt fyrir allt ekki verra að hafa þennan snjó - hann dempar hávaðann af götunni, nema skrapið í snjóruðningstækjunum aðeins, og þorramatur setur mark sitt á daginn. Notalegheit ofarlega á blaði. Ég læt mig litlu varða umræðuna um evruna...bankarnir eru orðnir ríkir, skilja viðskiptavininn eftir með gengisfall, yfirdráttarvexti og háa stýrivexti en sneiða sér undan þessu sjálfir. Og aðrar umræður í dagsins argaþrasi líða jafn rólega hjá..en mér finnst gaman að lesa moggablogg. Ólíklegustu gáfumenn, sem áður töluðu langt niður til bloggara eru orðnir kjút eins og litlir strákar af því þeir fá að vera með á mogganum.is. Fyndið.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home