Helgin
fer rólega fram. Ég sef, ligg í leti fram yfir hádegi eftir morgunkaffið, fylgist með þessu HM í framfótabolta og les. Athuga myndbönd sem ég á. Ég á myndband af stelpu í hvítum slopp að pína fullorðna konu með norsku lyktarspreyi. Furunála. Og hún notar brúsann eins og á að gera, til að fyrirbyggja allan misskilning. Tók þetta upp í leikhúsinu fyrir jólin. Andri kemur og fer, hormónarnir í kettinum koma og fara líka. Hún var á tímabili yfir sig ástfangin af gömlum bröndóttum fressketti með rifin eyru eftir ýmsa bardaga. Þessa dagana er franleiðnin hjá mér ekki mikil: Ég skrifa lítið en les þeim mun meira. Fylgdist með úrslitum í prófkjöri Framsóknar. Fór eins og ég bjóst við, líka eins og ég var að vona. Og nú verður Bjarni Harðarson bóksali að vera Ketill skrækur fyrir Skugga-Svein Guðna Ágústssonar. Árni Johnsen verður á listanum. Nú er eftir að sjá hvort Vinstri grænir bjóða eins frækilega fram og síðast í kjördæminu, að fá latínukennara í Reykjavík Vegahandbókina og benda honum á að keyra í austur. Og það nýjasta er að það framfótaboltinn er allur á afturfótunum.


Links to this post:
Create a Link
<< Home