Ég er
óttalega latur þessa dagana. Ég geri lítið annað en að liggja uppi í rúmi og lesa eða sofa þegar ég er ekki í vinnunni. Fylgist með fréttum og læt það duga. Það er samt ekki eins og ég sé að sökkva mér ofan í þunglyndi eða leiða: Þvert á móti. Mér hefur sjaldan liðið betur undanfarin ár. Og ekki er þreytunni fyrir að fara. Það er kannski einmitt þess vegna sem ég er með hausinn og sjálfan mig í einhverri hvíld. Það er ágætt að malla þetta bara frá degi til dags og láta hverjum degi nægja sína þjáningu, ef þjáningu skyldi kalla. Mæta í vinnuna, klára verkin og vera annars ekki að stressa sig á einhverju veseni. Fara bara á bókasafnið og byrgja sig upp af einhverju lesefni fyrir helgar og slaka á eftir góða hvíld. Er ekki að æsa mig á handboltanum, látunum í Frjálslynda flokknum eða fréttum dagsins: að er nóg af spekingum að skeggræða þau mál á moggablogginu: Atvinnulausir blaðamenn með dálkahöfund eða besserwisser í maganum. Og alltaf er verið að breya og bylta fjölmiðlaheiminum - þetta er orðið verra en bröltið í framhaldsskólunum sem búið er að vera að ganga yfir síðustu tuttugu ár. En ég er líka orðinn leiður á fjölmiðlunum og öllu offramboðinu þar. Það er ótrúlegt hvað íslenska þjóðin les mikið af innihaldslitlu tafsi, þegar að er gáð.


Links to this post:
Create a Link
<< Home