föstudagur, janúar 19, 2007

Það er

komin helgi og mér finnst gott að hún er komin. Ekki vegna þess að ég sé þreyttur eða syfjaður, heldur er bara gott að fá helgi stöku sinnum. Ég er einn í kotinu, borða þorramat og drekk mysu með. Af einhverjum ástæðum drekk ég alltaf mikið af mysu í janúar. Ég tjái mig ekki um málefni Byrgisins ennþá, en ég hef heyrt að þarna sé verið að leggja grunninn að því að ákveðinn frístundabóndi í Grímsnesinu fari í framboð fyrir Frjálslynda. Áðan hringdi einhver í mig og sagðist vera að hringja í mig fyrir Guðna Ágústsson. Guðni þarf ekkert að hringja í mig, ég heilsaði honum í kaffinu í morgun og Bjarni Harðarson var með honum. Ég spurði Bjarna hvort hann væri orðinn Ketill skrækur fyrir Skugga-Svein Guðna. Bjarni tók því líka vel. En Guðni er greinilega búinn að gleyma siðfræði sveitasímans þegar átti að hringja í menn. Reglurnar voru flóknar: Ekki hringja þegar fréttir og veðurfréttir voru í útvarpi eða sjónvarpi, ekki þegar menn voru í fjósinu, og byrja á því að fara út með kíki og gá hvort sá sem átti að hringja í væri í útiverkum. Þegar þetta var búið var svo ákveðið að skreppa bara og tala við hann. Guðni ætti að benda starfsmönnum sínum á þessa aðferð. En vissulega er ég spenntur fyrir úrslitum prófkjörsins hjá Framsókn, læt ekki uppi af hverju.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home