Það er
snjór úti. Einkennilegt hvað hrafnarnir sjást miklu betur þegar jörðin er hvít. Jólastemmning, þrátt fyrir allt. Ég ligg í bælinu og les mest allan daginn. Kötturinn hringar sig upp á teppinu sínu, rumskar öðru hverju til að þvo sér og kúrir sig svo niður aftur. Friðsæld. Heyrist varla í umferð úti á götu. Andri fer að spila seinnipartinn. Ég nenni ekki að taka niður jólaskrautið. Það má hanga einn dag í viðbót. Vinnan byrjar af fullum krafti á morgun - ágætt að fá einn dag svona í jólaframlengingu.


Links to this post:
Create a Link
<< Home