Enn framfótabolti
og fjör. Ég horfi með öðru auganu og hlusta með öðru eyranu. Svona til að vera með. Ég er eiginlega orðinn spenntari fyrir kvennabolta í seinni tíð. Hann getur verið allt í senn, fyndinn, klaufalegur og sexý. Ég skil til dæmis ekki hvernig karlar á mínum aldri geta hópast saman á börum og horft á strákahóp hlaupa fram og aftur á breiðtjaldi og þambað bjór á meðan. Það er eitthvað perverterað við það. Eins og það sé ekki nóg af þeim. Þessi íþrótt er líklega góð fyrir þá sem þurfa að komast á adrenalínkikk, eru spennufíklar og finnst gott að lifa með geðsveiflum. Manísk--depressívur stíll á þessu, svolítið. Það góða við þennan sigur landans á frökkum var að kötturinn hætti að breima á þessu heimili.


Links to this post:
Create a Link
<< Home