miðvikudagur, janúar 24, 2007

Einu sinni

var embætti í íslenskum sveitarstjórnum - og er reyndar enn, sums staðar - sem ekki þótti fínt, en það var að vera hundahreinsunarmaður. Jafn nauðsynlegt og það var. En nú hafa pólverjarnir bætt um betur og ætla að fara að skólphreinsa íslensku þjóðina að innan. Og selveste Jónína Ben, afrétt og uppápússuð fengin til að vera andlit þessa nýja embættis. Sjálf eins og nýhreinsaður hundur, brosandi og sæl. Það er eitthvað annað að sjá hana núna en í fyrra, núna þegar búið er að öxuldraga, ketilhreinsa og botnskafa. Eins og stundum var gert við gamla togara. Ég er samt ekki á leiðinni til Póllands. Og ekki heldur að fá mér litað fótabað. Ég bara malla þetta svona upp á gamla móðinn. Sleppi framfótaboltanum. Kötturinn er kominn ofan af hormónakikkinu og er núna í framan eins og kvenmaður eftir ástarævintýri, að enduruppgötva sjálfa sig og ná takti við tilveruna. Svolítið ráðvillt, eins og gengur og gerist, en það fer af.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home