Brrr
Mér er hálf kalt. Það er ekki venjulegt og ef mér er kalt merkir það að ég sé eitthvað lasinn. En ég var að koma heim frá því að skutla Andra í bæinn og á Hellisheiði sýna mælar 11 stiga frost. sem er samt ekki nóg til að mér verði kalt, vanalega. En það var gott að koma heim í ylinn og fá sér kaffi - ætli ég skríði ekki undir teppið og við kúrum þar, við kampagráa parið. Því núna er ekki fleira í bænum en ég og þessi köttur, sem segir ekki mjá nema einu sinni í mánuði, og þá þýðir það vanalega "Hleyptu mér út maður ég er alveg að míga á mig hérna!" Það er ekki þar með sagt að hún gefi ekki frá sér hljóð, en það eru mest murr og mí og mímí. En það er ekki margt að því að eiga hlýja íbúð, þykka sæng og teppi og hafa þennan ágæta gráa félagsskap. Og svo verður bara að koma í ljós hvort ég verð ekki fótafær á morgun.


Links to this post:
Create a Link
<< Home