laugardagur, desember 30, 2006

Svo

þeir hengdu Saddam. Svo hvað? Hvað sannar þetta, hvaða réttlæti er verið að fullnægja? Og hvernig kemur þetta mannkyninu til góða? Ég horfi á myndirnar í sjónvarpinu og þetta minnir mig mest á það þegar verið er að hengja hrossaþjófa í kvikmyndum í Villta vestrinu. G. Bush, Texas ranger, hefur fullnægt réttlætinu. Vá. Og sjónvarpsstöðvarnar sýna myndir af Bush ganga eftir rauðum dregli og Blair í takt við hann. Blair er eins og prúður og hlýðinn Framsóknarmaður. Brosandi, vitanlega. Hetjurnar miklu. Sekur eða saklaus - trúlega var hann sekur um eitthvað. Og mér er í raun og veru sama, maðurinn var ekkert skyldur mér. Vegna þess að þetta breytir svo sára litlu. Og þó að hann hefði drepið einhvern ættingja minn mundi það ekki færa mér þá aftur. Á sjónvarpsrásum heimsins eru menn að rýna í þetta og reyna að sjá einhvern djúphugsaðan tilgang með þessu. Það er ekki. Þetta er púra Texas - kábbojmyndaréttlæti.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home