þriðjudagur, desember 19, 2006

Sumum

hefur nú þótt blessaðir jólasveinarnir dálítið pervertískir. Stekkjarstaur garmurinn sem unir sér best í fjárhúsunum, Giljagaur sem liggur í leyni og hræðir fólk, að vísu með óljósum tilburðum, og svo auðvitað Gluggagægir hafa lengi legið undir grun. Þvörusleikir og Bjúgnakrækir gætu hugsanlega átt í vanda líka, á þessum Brokeback-Mountain tímum. Skyrgámur garmurinn og Pottasleikir hafa sloppið ennþá en það er aldrei að vita með það ímyndunarafl sem fólk hefur. Og Kertasníkir elti jú litlu börnin, sem vitað er. En ég er hálf gáttaður á þessu nýja sem gengur núna yfir fjölmiðlana á undan hverjum jólum. Er það skammdegið eða eitthvað annað sem vekur þessar kitlandi óhugnaðarkenndir hjá fólki? Það eru nú engir smá jólasveinar sem verið er að reyna að grípa núna, hvort sem það er meistarinn mikli í Byrginu eða hinn, þessi með vefmyndavélina. Og um síðustu jól var það pabbinn í Hafnarfirðinum. Og jólin þar áður var verið að hamast við að dæma sifjaspellsmenn. Er þetta það sem koma skal í fréttum landsmanna - hin árlega leit að jólaperranum? Ég bara spyr og spyr sá sem ekki veit. Ég varð að dunda við það í gær að stytta buxurnar mínar, þó ég þori varla að nefna það þessa dagana. Kannski náði einhver mynd af mér við þá iðju. Jólasveinninn Skálmaklippir. Það væri kannski rétt að nefna hver var fyrri maður Grýlu. Aumingja karlinn, hann á alla samúð mína. Hann hét Örgumleiði og er núna líklega fyrir löngu kominn með þingsæti í Færeyjum. (Fyrir þá sem ekki þekkja til var það gamalt orð yfir samkynhneigð að vera argur.) Eða kannski hann sé í vinnu hjá Kompás.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home