Snögg
ferð í bæinn að tala við lækninn minn. Blóðþrýstingurinn hjá mér mælist núna 129/62 sem er alveg prýðilegt. Ég stoppa lítið í bænum, fer í Bóksölu Stúdenta, kaupi latte í kaffiteríu, kíki á sagnfræðinemann og fer aftur heim. Á leiðinni austur lendi ég með lögguna aftan í mér og sýni fyrirmyndar ökumennsku á leiðinn frá Hveradölum austur í Ölfus, með nálina á 90 allan tímann. Í Ölfusinu verður löggan leið á þessu, fer framúr og hverfur sjónum. Þegar heim kemur legg ég mig og dedúa eitthvað, klára að ganga frá einkunnum og skila af mér. Ég var annars að gera merkilega uppgötvun: Það er ljómandi gott að sjóða rauðkál í eplasíder. Ég nota þennan norska sem fæst í Europris, hann er pínulítið áfengur og sykurlítill. Ég nota ekkert nema síderinn og þetta er ljómandi gott, frekar milt, og ef til vill ekki fyrir þá íslendinga sem eru vanir þessum pappa í ediki sem fæst hér í dósum og krukkum. Súra bragðið skila sér sem eftirbragð. Kannski er hægt að prjóna eitthvað utan á þetta ef fólk vill en það er gaman að prófa þetta.


Links to this post:
Create a Link
<< Home