fimmtudagur, desember 14, 2006

Skyndilega

dettur einhver kyrrð yfir heimilið mitt. Prófin eru búin. Kvikmyndatextinn er kominn aftur til uppruna síns og er þar í yfirlestri. Allt í einu er ekkert að gera. Ég ákveð að skreppa í rúnt um bæinn og skoða jólaskreytingar. Það er lítið að sjá: Skreytingarnar eru minni og smekkvísari en oft áður. Ofhlæðið er vonandi búið. Ég eyði afganginum af kvöldinu í að horfa á My Neighbors the Yamadas. Skemmtileg teiknimynd um fölskyldulíf. Af nógu að taka til umræðu fyrir þá sem hugsa um þau mál og fallegar teikningar. Sjálfstæðismenn eru greinilega ekki á eitt sáttir með þingmannsefnið sitt. Skorað á Árna Johnsen að hætta við. Sem hann að líkindum mun ekki gera, jafnvel þó það kosti flokkinn fylgi og jafnvel stjórnarþátttöku. Það er ekkert við þessu að gera: Maðurinn er kjörgengur og þetta er löglegt.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home