Nördajól
í Feðgabyggð. Jólamaturinn heppnaðist með fádæmum vel, hvort sem það var hryggurinn, waldorf-salatið, fiskiforrétturinn eða desertinn - ég hiksta ekkert á því að hafa þríréttaða máltíð fyrir tvo. Ég hef lært að spila Munchkin.. sem er gaman, og rétt í þessu er ég að sækja Hogfather á netið. Þegar hann er kominn niður setjum við upp heimabíóið: Skjávarpa, tjald og hljóðkerfi og horfum á. Fyrir þá sem ekki skilja....Hogfather gerist í heimi þar sem jörðin er flöt og flýgur um geiminn á bakinu á skjaldböku og fjórir fílar bera "jörðina" uppi. Hogfather - eða svínapabbi - er jólasveinninn í þessum heimi. En svo gerist það að leigumorðingi er fenginn til að myrða svínapabba, og þá gengur Dauðinn í verkin hans. Til að fylla upp í skarðið meðan Svínapabbi er að ná sér. Beinagrind í jólasveinabúningi. En farsinn spilast ekki út frá þessu, það er margt fleira þarna, eins og til dæmis Susan, sem er barnabarn Dauðans - í tvennum skilningi, eiginlega, - og Bilious, sem er timburmannaóguð. Vegna þess að það er til vínguð, þá er rökrétt að hinn sé til líka, og við segjum Ó guð, þegar við áköllum hann. Fleira skemmtilegt kemur við sögu í þessari mögnuðu jólamynd....hlakka til að horfa. Sérstaklega að sjá atriðið þegar Dauðinn renir sér niður stromp og situr fastur í kamínu sem hann kemst ekki út úr.


Links to this post:
Create a Link
<< Home