föstudagur, desember 01, 2006

Önnin

er búin, lausu endarnir hnýttir og allt klárt fyrir prófatörn. Ég er allt of slakur heima að sinna húsverkum, ég nennti ekki á jólaglögg starfsmanna í kvöld..ég er ekki hrifinn af vinnustaðapartíum. Of mikil hætta á uppgjörum og vont að vera makalaus. Hins vegar er ég byrjaður að útbúa Svíþjóðarjólapakkann - ætla að koma honum frá mér sem fyrst og pabbi og mamma komu með eitthvað handa strákunum. Barn, tengdabarn og barnabörn. Er ekki siður að setja Cheerios og Ora-baunir með í pakka til Skandinavíu? Hugsa samt að það muni ekki vanta. Sé til.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home