miðvikudagur, desember 20, 2006

Nei

ég er ekki að fara á flot. Ég er ekki að sökkva. Ég hef ekkert rosalegar áhyggjur af þessu flóði í Ölfusá. Ég er bara að slaka mér niður eftir önnina. Skrifaði eitthvað um brennivín og bændur í dag. Keypti eitthvað inn í jólamatinn. Ég er ekki heldur að fjárfesta í þessu nýjasta í jólagjöfum: Gjafabréf í líkamsgötun handa kærustunni. Það er engin kærasta, en Lafði Kampagrána yrði nú smart með perlu í eyranu, skemmtilega pönkuð.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home