miðvikudagur, desember 06, 2006

Nei

það er ekki mjög mikið að gera. Jólapakkinn til Svíþjóðar lagði af stað í gær. Alveg eins gott að vera búinn með hann, það er skemmtilegra fyrir fólkið að fá pakkana snemma. Svo er karlinn að skila verkum sínum - einkunnum úr þremur hópum skilað inn í dag, einn á morgun. Ég fylgist með pólitíkinni hér úr fjarska, eins og ég sé í öðrum hreppi. Ég vil ekki kommentera þar sem meiri hluti bæjarstjórnar úr öllum flokkum eru vinnufélagar og ég blanda mér ekki í pólitík. Sögukennarastaða er í eðli sínu pólitískt embætti, eða svo vilja sumir telja: Ég hef orðið fyrir olnbogaskotum úr ýmsum áttum þess vegna. Ef til vill vegna pólitíkurinnar í minni fjölskyldu, en ég hef reyndar aldrei tekið þátt í henni eða lagst á þá sveif...sumum úr fjölskyldunni til ama. Það er ekki sjálfgefið að ég sé í vissri pólitík af því eg er í vissri fjölskyldu. Læt mér duga að bæjarfulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks kenna saman íslensku við skólann. Ég er að hugsa um að fara til þeirra í kaffinu og biðja þá um að íslenska fyrir mig "major fuckup." Bæjarfulltrúi Samfylkingar sást ganga um með hækju: Augljóst að vinstri löppin á honum hafði verið notuð í að splæsa saman Frankenstein. Eða máluð græn.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home