Jólafriður
sígur yfir mig þegar líður nær helginni. Ég er búinn að kaupa allar jólagjafir nema eina, og farinn að kaupa í matinn: Aðallega vegna þess að ef ég bíð fram á síðustu daga verða bara vondir bitar í boði. Í gær lagði ég mig eftir vinnu og kötturinn var eitthvað að bardúsa inni í fataskáp, og hætti ekki fyrr en kassinn með jólaskrautinu féll með skruðningum fram á gólf. Ég tók þetta sem svo að hún vildi að ég færi að skreyta, sem ég og gerði. Kattarendemin elskar allt sem glitrar og horfir á það með hrifningu. Og þa´get ég farið að snúa mér að brennivínssögunni. Hún heimtar sitt eins og allar sögur.


Links to this post:
Create a Link
<< Home