Æi
og allt það. Seinni partinn: Skrepp í bæinn. Andri er að koma úr prófi og ég á nokkur erindi í jólakaupstað. Kem við í Nóatúni og skoða hvernig Ölfusá hagar sér. Undarlegt að sjá þennan óvenjulega atburð en fólk fer fram á stéttina, horfir yfir, og fer svo að sinna sínum daglegu erindum eins og ekkert merkilegt sé um að vera. Í Reykjavík: Hagkaup í Kringlunni. Finna stæði, finna það sem vantar, fara aftur. Clean in out operation, eins og þeri segja í hrenum og svo út á garða, pikka upp sagnfræðinemann og fara í Nexus. Það ættu allir að fara í Nexus fyrir jólin og skoða þennan menningargeira. Tveir fullorðnir menn kýta um hvor hafi verið nörd lengur. Annar þeirra er með alla fjölskylduna með sér. Hress stelpa í búðinni upplýsir mig um bækurnar: Afgreiðslufólkið í þessari búð veit hvað það er að tala um, það hefur reynt mest allan ósómann á sjálfu sér. Í spilasalnum er jólamarkaður og þar er sama stelpan. Eða systir hennar. Kannski er hún sú sama á báðum stöðum, það væri eftir öðru í þessari búð. Móðir með tíu ára son sinn. Hann er að velja sér einhver módel af skrýmslum. Mamman reynir með hálfum huga.."Af hverju geturðu ekki safnað einhverju venjulegu..." En hún gefst fljótlega upp og skömmu síðar sé ég hana sjálfa gramsa með bros á vör í kvikmyndabunkanum sem er á tilboði. Svo tekur hún á sig rögg, nær í strákinn og þau fara. Afgreiðslumennirnir þekkja Andra með nafni. Það er svo margt þarna sem ekki er mainstream...eftir að Andri hefur pikkað sér út jólagjöf förum við á American Style, og svo skutla ég honum heim og fer austur. Hellisheiðin er algjör bitch. Tveggja hæla él. (Það þýðir að þegar maður fer fram hjá einni vegarstiku grillir aðeins í þá næstu.) Einhver gamalvanur heiðarhundur hengir sig aftan í mig. Svo O.K. Ég er það kannski líka. Og það er gott að hafa gamlan hund aftan í sér því þeir hafa yfirleitt nógu langt milli bíla og hanga ekki með húddið milli rasskinnanna á manni. Og bannsettur er örugglega ánægður með að afa afturljósin hjá mér til að keyra eftir. Hann þarf ekki eins mikið að rýna í stikurnar. Austur af háheiðinni dregur úr hviðunum og éljunum og ég fer að sjá veginn. Kemst klakklaust heim og hitti soltinn kött, feginn sjálfur að hita kaffi. Það er þessi bæjarferð rétt fyrir jól, alltaf þarna sem partur af lífinu.


Links to this post:
Create a Link
<< Home