Enn einn
afmælsidagurinn. Ég hef fengið eina hamingjuósk með daginn: Frá konunni á bensínstöðinni sem kíkti aftan á debetkortið mitt. Mér er líka sosum sama. Þetta er venjulega einn dagur á ári, ég fæddist 1952, reiknaðu svo út hvað ég er gamall. Ég hef hvort sem er gert það sjálfur frá því ég varð tvítugur, eftir það hætti aldur einhvern veginn að skipta máli. Ég eyði deginum í félagsskap norðlenskra presta sem eru að argast á móti brennivíni: Er að taka saman skrif sem heita Um heilaga almenna lútersk-evangelíska drykkju. Það sem Kristi hefur tekist að rústa fyrir siðapostulum, til þess settum eða sjálfskipuðum, með viðhorfum sínum gagnvart víninu. Fyrst prédika þeir gegn víninu með eldi og brennisteini, detta svo sjálfir í það, vakna með móral og ákveða þegar aldurinn fer að segja til sín að láta þetta raus vera og arginþvargast í staðinn í bannsettu kynlífinu, sem þeir eru hvort sem er farnir að draga mikið úr sjálfir. Feh. Siðapostular sem falla í eigin gildrur.


Links to this post:
Create a Link
<< Home