fimmtudagur, desember 07, 2006

Enginn

sérstakur annadagur. Kláraði yfirferð í einum áfanga og skráði inn. Þá er bara einn eftir. Lífið hér er kyrrlátt. Ég fylgist með fréttum og horfi á sjónvarpsþætti um lækna sem flytja út í sveit. Hvað er eiginlega málið með það? Eins konar sveita-E.R. Núna heitir hann Martin, hranalegur fugl. Fáum við svona þætti með meira af íslensku sjónvarpsefni? Frægur geðlæknir sest að í Þorlákshöfn? Lífsreyndur lýtalæknir flytur upp að Flúðum? Hann fengi allavega verkefni. Og svo er verið að rífast um hvað vegurinn austur á Selfoss eigi að vera breiður. Sá vegur er búinn að vera dauðagildra síðan áður en ég flutti hingað og fyrir þann tíma. Eða svona um það bil frá því hann var malbikaður. En hvernig er það, er ekki vegur fyrir austan Selfoss? Þarf ekki að breikka hann líka? Tvíbreiðan veg austur að Kikrjubæjarklaustri, allavega til að byrja með.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home