Dagurinn
í dag er ekki dagur stórra afreka. Ég dragnaðist að vísu með bílinn á smurstöð. Annað ekki. Keypti mér disk með Yusuf, öðru nafni Cat Stevens. Þetta er vissulega gamil Cat - mistækur, annaðhvort góður eða slæmur, en hljóðblöndun nútímans passar ekki við þessa gömlu seventies-gaura. Í hvert skipti sem hann ætlar að beita röddinni á sinn sérkennilega hátt er hljómsveitin sem er með honum hækkuð líka til áherslu og röddin drukknar í hljómum. Fö. Og svo er þetta allt í einhverjum diskó - píkurokkstakti. Fór í kvöld í fyrstu ferð desember á Stokkseyri að skoða jólaljós. Bærinn er bara skaplegur núna, enn er ekkert ofhlæði á ferðinni. Í sumum húsum örlar jafnvel fyrir smekkvísi, litablöndun látin koma í staðinn fyrir ofhlæðið. Kannski þarf rókókó að koma á eftir barrokkinu í þessu líka.


Links to this post:
Create a Link
<< Home