laugardagur, desember 02, 2006

Annadagur

með sprettum. Fór í bæinn í morgun og eignaðist nýjar buxur, kláraði að kaupa jólagjafir handa barni, barnabörnum og tengdabarni í Svíþjóð. Nexus klikkar ekki þegar þarf að kaupa jólagjafir handa fólki sem er yfir meðalgreind. Ég freistaðist líka til að splæsa á mig fimm mynda pakka með ítölsku nýraunsæi...sem, fyrir þá sem ekki vita, er ekki eins nýtt og það hljómar. Og svo eignaðist ég líka tíu ára afmælisútgáfuna af Settlers II. Síðasta eintakið í Skífunni. Sótti Andra út á garða og renndi austur í óhemju fallegu vetrarveðri. Andri hefur ekki staðið upp frá leiknum efit að ég hleypti honum í hann klukkan fjögur. Enda er þetta gamall uppáhaldsleikur hjá honum. Og reyndar mér líka. Svo þegar austur kom fór ég að leita að baunum og rauðkáli til að setja í Svíþjóðar pakkann. ORA-baunirnar voru til, en ekki rauðkál í dósum, bara krukkum, og ég tek ekki áhættuna á að setja glerkrukku í svona pakka. En ég á góða uppskrift að soðnu rauðkáli einhvers staðar. Sendi hana bara. Og nóg af harðfiski handa þeim að bjóða kínverjum og fleirum. Verst að ekki skuli vera til súrsað rengi handa þeim. Kannski lauma ég einhverju fleira með.
Já. Og svo seldi ég íbúðina mína. Eða réttara sagt, skrifaði undir samninginn upp á að fá nýja íbúð í húsi sem á að byggja við hliðina á mínu. Kaupverðið er annars leyndarmál.
Og svo er ég búinn að leggja drög að mínum eigin jólagjöfum handa sjálfum mér - nýja bókin hans Terry Pratchett er inni í skáp og bíður þar eftir jólanóttinni, og líka Carl Hiaasen. Ég freistaðist ekki til að kaupa The Absolute Sandman á 10.000 rúm í Nexus en pantaði hana á Amazon. En ég er kominn með nýja bók efir Gaiman og vakti fram eftir í nótt yfir henni og borðaði appelsínur. Gaiman með sínar óhuggulegu sögur er fínn svona til að bæta á dulúð jólanna.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home