Veit
einhver hvað margar víkingamiðstöðvar eru á teikniborðinu núna? Á ekki að vera eitthvert víkingasafn á Suðurnesjunum, til að taka við ferðamönnum? Er ekki einhver að fara á stað með svona norður í Miðfirði? Var ekki eitthvað verið að vesenast með Gísla Súrsson fyrir vestan? Fara menn ekki bráðum að byggja Árna Johnsen skála í Eyjum? Eða átti það að vera einhvern veginn öðruvísi menningarmiðstöð? Þetta er að verða eins og loðdýraræktin forðum, eða samastofurnar, eða fiskeldið, nú eða skuttogararnir. Viking inn á hvert heimili. Þar með verður hægt að skipta íslenskum safngripum í þrennt: A. Endurgerðir víkingar, B. Torfbæir, C. Gamlir traktorar. Nú ætlar einn náungi að byggja víkingamiðstöð upp á nokkra milljarða við Þjórsárbrú. Á Þjótanda. Ég ætti kannski að sækja um vinnu þar í krafti ættartengsla, ömmubróðir minn hann Einar gamli Brynjólfsson bjó þar nú....og frændur afa voru þar á undan Einari. Það verður nokkuð góður rúntur að byrja með ferðamennina á Suðurnesjunum, næsta stopp Þjótandi, og hálftíma seinna Sögusetrið á Hvolsvelli, síðan Skógar. Svo var búið að byggja skála á Eiríksstöðum og við þetta má bæta "Þjóðveldisbænum" í Þjórsárdal. Þar sem heilt hús stendur autt og ekki einu sinni hægt að fá salinn fyrir partý. Þó ég viti um einn sagnfræðinema sem hélt útskriftarpartíið sitt í Þjóðveldisbænum, en það var líka vegna þess að hann vann þar á sumrin. Það er þó allavega hægt að kaupa kók úr kæli þar innfrá. Og svo var það skálinn á Efstalandi...þar er þó allavega partíaðstaða. Er ekki að verða komið nóg?


Links to this post:
Create a Link
<< Home