Það var
dimm og stormasöm nótt. Ein af þessum nóttum sem hundar í teiknimyndasögum skrifa skáldsögur um og aldrei fást birtar. Það klufu engar eldingar storminn, engin kona ein á hlaupum í bleytunni að leita að húsaskjóli. En gamall sveitungi hringdi í mig og bað mig um að líta við hjá sér. Hann vantaði nefnilega einvígispístólur. Nei, þetta var bara fyrir leikfélagið. Ekkert alvarlegt. Og svo bættust á mig upptökur af einni leiksýningu til að klippa. Ýmislegt taka kallar fyrir. Kvikmyndagerðarmaðurinn bankaði upp á í gær með verklýsingu handa mér hvernig ég á að gera þennan texta við kvikmyndina hans. Og saga alkóhólsins er alltaf í vinnslu - fékk eina bók í dag um kvenfólk og brennivín. Það er athyglisverð saga að koma fram í dagsljósið þar. Og Vídalínspostillu. Hvað var prédikað yfir landslýð? Svo að í nótt get ég lagt mig með Kampagránu, lesið Jón Vídalín og hlustað á veðrið.


Links to this post:
Create a Link
<< Home