laugardagur, nóvember 11, 2006

Rólegt

og svona. Ég er einn með kettinum, sagnfræðineminn hætti við að koma og taldi vissara að liggja yfir ritgerðasmíð, sem ég er alveg sammála. Ritgerðirnar eru nr. eitt tvö og þrjú þar á bæ. Á meðan hef ég nógan starfa: Klippa og skera myndbandsupptökur af leikritum, skrifa út á diska og semja texta fyrir heimildarmyndina. Svo ég er að breytast í það sem kallað er "cultural worker" - einn af þeim nafnlausu sem starfa í menningargeiranum án þess að sjást. Og svo var það prófkjörið hjá Sjálfstæðismönnum á Suðurlandi - alltaf gaman að fylgjast með atvikum hjá því skrýtna fólki. Árni Johnsen aftur á þing, barasta. Æ hvað ég verð alltaf fegnari og fegnari að vera ekki flokksbundinn neinum flokki. Annaðhvort það eða fara í framboð fyrir þá, þeir kjósa hvað sem er.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home