Og helgi enn
vika eftir af skóla. Sonur minn á í nafnavanda úti í Svíþjóð. Í Noregi væri bara flott að heita Brynjulf Erlingson. Þar heita heilu göturnar og torgin eftir þess konar mönnum. Hinn sonur minn hyggst dvelja vestan fjalla um helgina við aðdrætti til ritgerðasmíða - það er gott mál því ritgerðirnar eru það sem sagnfræðineminn stendur og fellur með. Svo við tvö þessi kampagráu verðum hér. Og nú er markið sett á andlegt skilti sem hangir uppi á nagla í sálinni á mér og það stendur á því "kósý". Og ég er byrjaður að taka til og setja upp jólagardínur við eldhúsgluggann.


Links to this post:
Create a Link
<< Home