föstudagur, nóvember 17, 2006

Og enn

er komin helgi. Það lítur út fyrir að hún verði köld. Og ég er ekki alveg að kaupa þetta með "bilun í dælubúnaði" eða hvað þeir kalla þetta hjá veitunni. En ég bý vel...á Selfossi hefur alltaf skipt máli að búa nálægt aðalæð veitunnar og það breytist ekki. Sagnfræðineminn kemur að sunnan með tösku fulla af þvotti - og hann hefur varla náð að borða og henda í tvær vélar (ég er engin mamma sem tekur við óhreina tauinu) þegar hann muldrar "kósý" og fer inn í herbergið sitt. Ég rétt næ að henda teppi ofan á sængina hjá honum og kettinum inn til hans þegar hann er liðinn út af eins og ljós. Mér finnst sjálfum að hugmyndin sé óvitlaus og ætla að gera þetta líka.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home