sunnudagur, nóvember 12, 2006

ég held að ég viti í dag hvað mig langar. Mig langar að heyra Árna Johnsen syngja "Ég er furðuverk." Það er bara ekkert ósanngjarnt að fara fram á það. Að ég tali ekki um þetta á þriðja þúsund manna sem gætu tekið viðlagið með honum. En í dag er ég bara búinn að vera duglegur. Vinna með upptökur af leiksýningum, klippa þær og koma einhverjum diskum til fólks. Skrifa diska. Þvo þvottinn minn. Sinna bílnum: Trukk í dekkjum, lásaolíu í eitthvað af götum og taka bensín. Og gefa kettinum pilluna. Það fer þannig fram að pillunni er laumað í túnfiskikurl sem svo er borið fram fyrir hana með viðhöfn á teskeið. Vegna þess að túnfiskur heitir tjúna á ensku er þetta kallað að tjúna köttinn. Tekst oftast. Vinna í kvikmyndatextanum. Deadline á einhverjum hluta af því um mánaðamót. Fyrirlestur úti í skóla næsta föstudag. Það verður þessi vika sem fer í það að mestu. Elda og borða staðgóðan kvöldmat. Það er ekki eins og maður sé alltaf heima á nærbuxunum að safna uppvaski upp í haug þó maður búi einn....
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home