miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Ég fékk


Subaruinn minn aftur í gær. Ég er aftur orðinn ég. Og núna að dunda við að klára það sem ég hafði tekið að mér: Búinn að skrifa DVD diskana fyrir leikfélagið, og stússa við að koma þessum kvikmyndatexta saman í eina heild. Og fylgist með krumma baða sig. Já, það er gaman að hafa auga með Framsókn núna, að basla við að finna á sér vinstri löppina. Þeir hafa líklega áttað sig á hvert vindurinn blæs. Ætla allavega að standa í tvo fætur fyrir kosningar og dansa sitt gamla vinstri -hægri, vinstri, hægri cha cha cha. Þeir voru að reyna þetta aðeins fyrir síðustu kosningar en það var frekar ótrúverðugt. Sannleikurinn í málinu er sá að það er engin vinstri löpp undir þessum flokki heldur bara tréfótur sem er skrúfaður undir í nokkra mánuði á fjögurra ára freesti, svo ganga þeir í Sjálfstæðisflokkinn aftur. Afneitun gagnvart Írak, ráðning Norðmanna í landvarnirnar, og svo segja þeir að Ríkssjónvarpið eigi að vera óháð polítík. Það er af sem áður var þegar ekkert mátti henda í þjóðfélaginu án þess að RÚV tæki viðtal við einn Framsóknarmann eða fleiri, og kötturinn okkar Andra gat lært af þeim að vera eins og grár köttur með því einu að horfa á fréttirnar. Og það eru fáir kettir grárri en Lafði Hermína Elmindreda.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home