sunnudagur, nóvember 19, 2006

Ekki

kom neinn snjór á Suðurland. Hér er auð jörð en allavega sæmilega hlýtt - hægt að sitja á bol og nærbuxum fram eftir degi og dunda við rannsóknir. Ég er að komast að dálítið ævintýralega skemmtilegum niðurstöðum í sögu áfengis og drykkjuskapar. Sagnfræðineminn fór í bæinn snemma og seinni hluti dagsins fór bara í smádútl. En þetta er það sem mín tilvera gírar sig inn á..löng vetrarkvöld. Og þau eru meiriháttar notaleg þó snjóinn vanti enn sem komið er. Tíminn eftir vinnu fer í að sinna bílnum: Hann fær ný framdekk og gömlu tátiljunum sem voru að aftan var hent. Svo fæ ég nýja hurð á næstu dögum..þá er bara smmurstöðin eftir.
|

Links to this post:

Create a Link

<< Home