Þeir komu til mín
í vinnuna í gær og tóku bílinn minn af mér. Já, það er góð þjónustan hjá réttingarverkstæðunum á Selfossi. Í staðinn létu þeir mig hafa hvítan Yaris, sem mér finnst hundleiðinlegur, mér finnst eins og ég sé með vélina í fanginu og rassinn aftur í skotti. Andri stríðir mér sundur og saman á þessu, spurði hvort tískulöggan hefði handtekið mig og dæmt mig í þessa refsingu, talar um Yuppie Yaris og Single-mom Yaris. Útvarpið er fast stillt á FM 95.7 og fer í gang þegar ég starta. Og svo er hann með fídusa. Sem ég nenni ekki að stúdera því ég fæ Subaruinn aftur eftir nokkra daga. Nagladekk á öllum og hljóðið frá dekkjunum er eins og hundur labbi á parketi. Mér finnst eins og ég sé ekki ég núna.


Links to this post:
Create a Link
<< Home